Verðskrá - aðgangur og skautaleiga

Hér má finna upplýsingar um aðgangseyrir, leigu á skautum og verð á annarri þjónustu. Við viljum benda öllum sem ætla að fara á skauta að hægt er að fá lánaðan hjálm endurgjaldslaust á meðan á heimsókninni stendur.

Hægt er að kaupa miða á staðnum eða bóka tíma á skauta hér!

Kaupa staka tíma

Börn (6-16 ára)

Aðgangseyrir: 800 kr.
Skautaleiga: 650 kr. (stærð 27-48)
Samtals saman: 1.450 kr.

Fullorðnir (17 ára og eldri):

Aðgangseyrir: 1.200 kr.
Skautaleiga: 650 kr. (stærð 27-48)
Samtals saman: 1.850 kr.

Kaupa 10 tíma kort

Barnakort (6-16 ára):

Gilda ekki fyrir hópa
10 miðar – aðgangur: 6.500 kr.
10 miðar – aðgangur og skautaleiga: 11.500 kr

Kort fyrir fullorðna (17 ára og eldri):

Gilda ekki fyrir hópa
10 miðar – aðgangur: 10.000 kr.
10 miðar – aðgangur og skautaleiga: 15.000 kr.

Leikskólabörn, aldraðir og öryrkjar: Frítt

Fjölskyldupakki:

Aðgangseyrir og skautaleiga fyrir fjóra. Að minnst einn fullorðinn, hámark tveir fullorðnir.
Samtals: 4.900 kr.

Hópafsláttur 20 eða fleiri

Börn 6-16 ára

Aðgangur og skautaleiga: 1.200 kr.
Aðgangur: 650 kr.

Fullorðnir 17 ára og eldri

Aðgangur og skautaleiga: 1.450 kr.
Aðgangur: 1.000 kr.

Afsláttur er veittur hópum yfir 20 manns á almenningstímum. Greiða verður samtímis fyrir allan hópinn.

Skólaafsláttur

(frá kl.09:00 til 14:30 á virkum dögum)

Aðgangur og skautaleiga: 1.000 kr.
Aðgangur: 650 kr.

Reglur um skólahópa: Ofangreindur hópafsláttur fyrir skólanemendur gildir á virkum dögum frá kl. 09:00 til kl. 14:30. Nemendur eru á vegum viðkomandi skóla ásamt kennara. Miðað er við að skólahópar séu 1 klst. á svellinu, nema um annað sé samið. Afslátturinn er háður því að greitt sé fyrir allan hópinn í einu. Afslátturinn gildir ekki í jóla- og páskafríum skólanna. Lágmarksfjöldi er 20 nemendur frá kl. 9:00-12:00 á virkum dögum.

Önnur þjónusta

Skautaskerpingar: 1.700 kr.
Undirsetning blaða: 6.000 kr.
Þessi þjónusta er í boði eftir klukkan 13 á virkum dögum og á opnunartíma um helgar.


Leiga á Skautahöllinni

Skólar, fyrirtæki, hópar og einstaklingar geta fengið Skautahöllina leigða fyrir skemmtanir eins og t.d afmæli, jólaböll, fjölskylduhátíðir, fyrirtækjaskemmtanir og fleira á laugardagskvöldum frá kl.17:15 til 22:00. Nánari upplýsingar hjá Skautahöllinni í síma 588 9705 eða með því að senda tölvupóst á netfangið skautaholl@skautaholl.is